Hilmar fæddist í Keflavík 16 nóvember 1985. Hann var sonur Gísla og Ragnheiðar,elstur þriggja sona þeirra.Yngri bræður hans eru Hjalti f 87 og Björn f 88. Hann átti 2 eldri systur sammæðra, Hjördísi f 81 og Sólrúnu f 83.
Kvöldið áður en Hilmar fæddist þá gekk mikið ofsaveður yfir Suðurnesin. Eina úrræði okkar foreldranna var að nota vinnubíl pabbans til að komast á fæðingardeildina. Vinnubíllinn var steypubíll hehe. Hilmar kom í heiminn með stæl og fór eiginlega með annarskonar stæl burt aftur.
Blessuð sé minning hans.
Ég hef ákveðið að hafa síðuna hans opna og greiddi fyrir hana áðan.
Endilega gerið vart við ykkur í gestabókinni hans.
Takk fyrir komuna
|